Nýr keilusalur á Laugavegi?Á Laugavegi verður opnaður nýr skemmtistaður þar sem Oliver er nú til húsa. Það er svo sem ekki í frásögu færandi fyrir okkur keilara, nema hvað á nýja staðnum verður keilubraut. Staðurinn er í anda Big Lebowski kvikmyndarinnar og verða bindi ekki leyfð. Arnar Gíslason sem er núverandi eigandi Enska barsins er að opna þennan skemmtistað.
Meira »